Tuesday, October 9, 2012

1 Mánuður

Þá er maður búinn að vera hér í 1 mánuð og ég er ekki allveg viss hvort að það hafi verið lengi að líða eða fáranlega stutt en það er allaveganna búið vera mjög gaman hérna.

Mig langar að aðeins að tala um muninn á jafnöldrum mínum hérna og á Íslandi.
Í fyrsta lagi er ég risastór hérna þannig að það er eitthvað sem ég hef aldrei upplifað, en ég er í flestum tilfellum allveg 10 cm stærri en strákarnir hérna.
Annað er að stelpurnar eru pínu svona barnalegri en á Íslandi, ég er ekkert að segja að þær séu 5 árum eftir í þroska en það koma svona móment sem maður hristir bara hausinn. Eitt gott dæmi um það var þegar ég var ný kominn í nýja bekkinn minn sagði ein stelpa að ég væri sætur við vinkonu sína og vinkona stelpunnar sagði mér það, stelpunni fannst þetta svo hræðilegt að hún hljóp út út stofunni grátandi. Ég verð að segja að þetta var full ýkt fyrir minn smekk en svona kjánalæti eru oft búin að koma fyrir.

Annað sem fer virkilega í taugarnar á mér eru þessir helvítis snýtiklútar. Ítölum finnst ekkert sjálfsagðara að en að vippa snýtiklútnum eða pappír fram og frussu svo hressilega í þá að það liggur við að ég heyri það út, ég er ekki einusinni að ýkja. Krakkarnir gera þetta líka. Svo er líka ógeðslegt að sjúga upp í nefið, ég á örugglega eftir að lýsa tilfinningum mínum um þetta í hverju einasta bloggi, búinn að gera það allaveganna tvisvar núna.

Krakkarnir hérna sem eru í skólum eru heldur ekkert að fara út á kvöldin, eða gera eitthvað á kvöldin. Það kemur af og til fyrir að það séu eitthver skólaböll eða slíkt en annars gera krakkarnir voðalega lítið. Þetta finnst mér ekkert sniðgut þar sem við krakkarnir á Reyaðarfirði fórum nær undantekningarlaust á rúntin eða bara eitthvað út á röltið um kvöldin. Þau gera hinsvegar eitthvað um daginn þar sem jú skólinn er allveg oftast búinn um 12 leitið, þau fara þá oftast á Mcdonalds eða eitthvað slíkt og svo heim til eitthvers og ræða þar um vandamál heimsins, eða eitthvað þannig. Ég er nú samt bara að giska þar sem ég hef oftast ekki hugmynd um hvað þau eru að tala.

Tóbaks notkuninn er líka mjög mikil hérna hjá unglingunum en það eru þá einungis sígarettur sem eru neyttar, ég sagði þeim frá Íslenska tóbakinu en þeim fannst það ekkert sniðugt, erfitt að siða þetta fólk. Það eru ekki bara sígarettu neysla sem er meiri hérna heldur einnig gras. Ég veit ekki hversu oft mér hefur verið boðið að fá einn smók af jónunni hjá eitthverjum og tvisvar sinnum hefur þetta komið fyrir í skólanum mínum þótt að ég taki ekki mikið eftir því. 

En nóg í bili, ímyndunar aflið mitt er ekki upp á sitt besta núna þar sem ég er búinn að vera þreyttur í svona 2 vikur. Ég reyni að koma með eitthvað blogg eftir nokkrar vikur, en ég lofa engu, er mjög gleyminn sjáiði til.

Þar til næst

-Daaanííí


No comments:

Post a Comment