Monday, December 17, 2012

Natale

Jæja þá er alveg að skella í jólin hér í Merate og jólaandinn aðeins kominn í gang eftir að það byrjaði að snjóa smá. Svo er líka búið setja upp bláar ljósabjöllur allstaðar í miðbænum og það hressir svo sannarlega upp á hlutina og svo eru hinir og þessir jólamarkaðir í bænum. Ég er ekki alveg að fíla það að við fáum jólafrí þann 23. desember og byrjum aftur 6. jan en lítið sem ekkert jólafrí vill ég kalla þetta. Við fáum reyndar alveg slatta af frí dögum útaf þessum snjó en þetta myndi ekki vera neinn snjór á Íslandi.  Þessir ítalir vita ekkert hvað alvöru snjór er ef þeir eru að væla yfir þessum tittlingaskít. 
Það er reyndar alveg ágætt að þeir hafi ekki sama standarda og við þegar kemur að því hvað mikill snjór sé þar sem þeir hika ekki við að loka skólanum ef það snjóar pínu, ég skil það líka kannski aðeins meira núna þar sem ég fattaði það að ef hundruð ítalskra ökumanna væru að keyra nálægt skóla...í hálku, myndi stórslys verða get ég fullvissað ykkur um.


Snjókast í gangi í Miðbænum





Þó að snjórinn sé ekkert svakalega mikill er alltaf svo mellu kalt hérna og þá sérstaklega um morgnanna, plúss það að lestarfólkið fattaði ekki að það gæti kannski orðið kalt í nágreni ítölsku alpanna þannig að þeir settu enga ofna eða eitthverja hitingu í lestina þannig að þegar það er ekki sól er mjög erfitt að sitja kyrr í frjósandi kulda

En nóg að væli hjá mér í dag, fattaði að ég geri lítið annað en að væla um hitt og þetta í bloggunum mínum.
Þessir síðustu 30 dagar eru búnir að vera rosalega góðir. Búinn að finna mér vini í bænum mínum loksins þannig að ég þarf ekki alltaf að taka lestina til Lecco til að hafa eitthvað að gera og ítalskan orðin það góð að ég þarf nær aldrei að teygja mig yfir í enskuna sem er auðvitað mjög gott. Ég hef þó enþá ekki rassgat að gera í skólanum mínum, en ég kvarta ekki þar sem ég nenni eiginlega hvort sem er ekki að gera neitt.

Ég er þá líka búinn að kynnast svörtu hlið Merate eftir að ég varð vitni af virkilega grófri líkamsárás þar sem eitthver klikkaður 17 ára risi kom inn í kaffi húsið þar sem ég og vinir mínir sátu og lepjuðum á gómsætu Capuccio þar sem það var fáranlega kalt úti og byrjaði þá helmennið að hammra í andlitið á fyrsta strák sem hann sá þarna. Ég áttaði mig ekki á því hvað var að gerast þangað til að kaffibolli og diskur flugu rétt framhjá andlitinu mínu en svo komu menn og yfirbuguðu dreng andskotann eftir að hann sparkaði í eina þjónustudömu. Ég veit ekki alveg hvað hausinn minn var að spá enn þegar slagurinn var í gangi forðuðu sér allir nema ég þar sem ég var ekki alveg að ná hvað væri að gerast þannig að ég sat þarna um nokkra stund þangað til að ég fattaði að þessi maður væri geðsjúklingur og að ég ætti kannski að drulla mér í burtu. Seinna var tekið viðtal við okkur og eftir klukkutíma máttum við fara.

Svona hálftíma seinna vorum við að labba í miðbæ Merate og knýr ekki eitthver maður þar niður og skallar gangstéttina. Eitthver kona (sem að mínu mati á skilið kona ársins) hélt í honum lífinu í aðeins meiri tíma með hjartahnoði og alles. Maðurinn dó því miður seinna um daginn á spítalanum vegna höfuðhöggsins sem hann fékk þegar hann skallaði gangstéttina.

Þrátt fyrir þetta er ekkert nýtt búið að gerast hér og allir fáranlega chillaðir eins og alltaf, enda ítalar. Ekki tíðinda mesti mánuðurinn en annars segji ég þetta bara gott í bili.

Ég vill einnig biðjast afsökunnar á málfræði og stafsetninga villum í þessari færslu en það mun vera útaf því að ég hef talað litla sem enga íslensku í rúma 3 mánuði og ég er orðinn alveg helvíti málhaltur.


Arrivederci.