Tuesday, October 30, 2012

Ég veit ekkert hvað þetta á að heita

Jæja þá er maður búinn að vera hérna á Ítalíu í næstum því 2 mánuði og loksins er ég farinn að skilja þetta andskotans tungumál.

Ég komst að því um daginn þegar ég sat í tíma að teikna hús, tré og sól eins og vanalega að ég skildi allveg hvað kennarinn var að tala um...mér til mikillar furðu. Þá er það allaveganna staðfest að ég heyri ekki bara hljóð núna eins og fyrr.

Val Masino
Já heyrðu campið, það var mjög gaman. Við mættum öll frá Lomabardia á þennan mjög fallega stað sem heitir Val Masino. Val Masino minnti mig af einhverju leiti á Ísland, allaveganna þar sem ég bý. Mikil og stór fjöll umkringdu mann og var þetta að vissu leiti allveg eins og koma aftur heim til Reyðarfjarðar; vatnið mjög tært og ferskt, loftið var fáranlega gott og ég man vel eftir fyrsta andardrættinum sem ég tók þarna, mér leið eins og ég væri kominn aftur heim. Þetta er kannski orðið full dramatískt hjá mér og ýkt en allaveganna þá var þetta svona pínu líkt íslandi... fyrir utan það að ekki var mikið um íslendinga þarna.
Ég varð fyrir miklum vonbrigðum þegar okkur varð tjáð að við mættum ekki fara frá hótel svæðinu því mig langaði rosalega mikið að skoða þennan fallega stað, eins og allir hinir býst ég við, en nei, það var ekki hægt.
Eftir mjög skemtilegan fyrsta dag vorum við öll kölluð á fund og var þá hressilega drullað yfir "okkur" fyrir að koma með Jagermeister flösku á campið. Það voru þá 2 mexikanskir krakkar sem komu með þá flösku og viðurkenndu það með príði. Svo var eitthvað vesen með eitthvern rússa auðvitað sem kom með vodka í vatnsflösku...lúmskur, en það virkaði ekki alveg þar sem sjálfboðaliðarnir fundu þetta strax.
Annars var bara mjög gaman, tók dáldið eftir því fyrst að ég er orðinn pinku pons málhaltur í íslenskunni, en það var allt búið að lagast eftir að hafa talað íslensku í 4 daga.

Núna loksins er ég líka byrjaður í ítölsku námskeiðinu en það tók skólinn minn tók sér alveg helvíti langann tíma í þetta litla verk. Ég þarf þá að fara úr skólanum korteri áður en námskeiðið byrjar og skokka í annan skóla sem er akkúrat á hinum enda bæjarins og sitja þar sveittur í 2 klukkustundir. Það fáa skemmtilega sem gerist í þessum tíma er að ég fæ að spjalla aðeins við stelpurnar sem eru líka þarna, nema tælenska stelpan...hún talar ekki.

Ég fékk að skipta um bekk fyrir svona 3 vikum þar sem ég var ekkert að fíla það alltof mikið að vera í bekk með félagsheftu fólki. Þetta var eiginlega mánuður sem fór í vaskinn þegar kom að því að kynnast fólki. Í fyrstu leist mér rosalega vel á þau enda var ég nýji útlenski strákurinn en eftir svona 2 vikur gerði ég ekkert annað en að sitja á rassinum og gera ekki neitt haldandi kjafti því ef ég kom með eitthverja heimsborgaralega spurningu þá var ég shussaður niður á núlleinni. Umsjónarkennarinn minn stakk reyndar upp á því að ég færi í annan bekk þar sem fögin sem ég var að læra voru ekki beint á mínu sviði... Geimflaugavísindi, eðlisfræði etc.
Ég passa miklu betur inn í nýja bekkinn minn, krakkarnir eru kærulausari og eru miklu vinalegri heldur en hinn. Ég er þá líka búinn að finna mér almennilegann vinahóp í bekknum og lifa þeir krakkar mjög rólegum og "good feel" lífstíl. Ekkert stress yfir skólanum eða neitt og mér finnst það bara helvíti fínt.

Það er eitt sem ég er ekki að fíla við nýja bekkinn og það er íþróttakennarinn. Hún hefur án efa eitthverntíman verið í hernum þar sem við gerum ekkert annað en styrktaræfingar og eitthverjar fáranlegar teyjur með hinum og þessum tækjum og tólum á meðan krakkarnir hinum meginn í salnum leika ýmist blak, fórbolta eða körfubolta. Mér finnst þetta ekkert sniðugt þar sem mér finnst fátt skemmtilegra en að spila fórbolta þó að ég geti ekki æft lengur útaf hnéinu. En annars er ég mjög sáttur við þessi skipti.

Ætla að segja það gott í bili, reyni að koma með eitthverjar færslu á svona 3 vikna til mánaðar fresti en auðvitað lofa ég engu þar sem ég er latur.

Þar til næst, Daaníí Kaarí Gubdjoblonns


Tuesday, October 9, 2012

1 Mánuður

Þá er maður búinn að vera hér í 1 mánuð og ég er ekki allveg viss hvort að það hafi verið lengi að líða eða fáranlega stutt en það er allaveganna búið vera mjög gaman hérna.

Mig langar að aðeins að tala um muninn á jafnöldrum mínum hérna og á Íslandi.
Í fyrsta lagi er ég risastór hérna þannig að það er eitthvað sem ég hef aldrei upplifað, en ég er í flestum tilfellum allveg 10 cm stærri en strákarnir hérna.
Annað er að stelpurnar eru pínu svona barnalegri en á Íslandi, ég er ekkert að segja að þær séu 5 árum eftir í þroska en það koma svona móment sem maður hristir bara hausinn. Eitt gott dæmi um það var þegar ég var ný kominn í nýja bekkinn minn sagði ein stelpa að ég væri sætur við vinkonu sína og vinkona stelpunnar sagði mér það, stelpunni fannst þetta svo hræðilegt að hún hljóp út út stofunni grátandi. Ég verð að segja að þetta var full ýkt fyrir minn smekk en svona kjánalæti eru oft búin að koma fyrir.

Annað sem fer virkilega í taugarnar á mér eru þessir helvítis snýtiklútar. Ítölum finnst ekkert sjálfsagðara að en að vippa snýtiklútnum eða pappír fram og frussu svo hressilega í þá að það liggur við að ég heyri það út, ég er ekki einusinni að ýkja. Krakkarnir gera þetta líka. Svo er líka ógeðslegt að sjúga upp í nefið, ég á örugglega eftir að lýsa tilfinningum mínum um þetta í hverju einasta bloggi, búinn að gera það allaveganna tvisvar núna.

Krakkarnir hérna sem eru í skólum eru heldur ekkert að fara út á kvöldin, eða gera eitthvað á kvöldin. Það kemur af og til fyrir að það séu eitthver skólaböll eða slíkt en annars gera krakkarnir voðalega lítið. Þetta finnst mér ekkert sniðgut þar sem við krakkarnir á Reyaðarfirði fórum nær undantekningarlaust á rúntin eða bara eitthvað út á röltið um kvöldin. Þau gera hinsvegar eitthvað um daginn þar sem jú skólinn er allveg oftast búinn um 12 leitið, þau fara þá oftast á Mcdonalds eða eitthvað slíkt og svo heim til eitthvers og ræða þar um vandamál heimsins, eða eitthvað þannig. Ég er nú samt bara að giska þar sem ég hef oftast ekki hugmynd um hvað þau eru að tala.

Tóbaks notkuninn er líka mjög mikil hérna hjá unglingunum en það eru þá einungis sígarettur sem eru neyttar, ég sagði þeim frá Íslenska tóbakinu en þeim fannst það ekkert sniðugt, erfitt að siða þetta fólk. Það eru ekki bara sígarettu neysla sem er meiri hérna heldur einnig gras. Ég veit ekki hversu oft mér hefur verið boðið að fá einn smók af jónunni hjá eitthverjum og tvisvar sinnum hefur þetta komið fyrir í skólanum mínum þótt að ég taki ekki mikið eftir því. 

En nóg í bili, ímyndunar aflið mitt er ekki upp á sitt besta núna þar sem ég er búinn að vera þreyttur í svona 2 vikur. Ég reyni að koma með eitthvað blogg eftir nokkrar vikur, en ég lofa engu, er mjög gleyminn sjáiði til.

Þar til næst

-Daaanííí