Friday, September 21, 2012

Due Settimane

Jæja þá er maður búinn að vera í Ítalíu í tvær vikur og ég er að skemmta mér helvíti vel bara.

Það er bara búið að vera helvíti gaman hérna í Merate þótt að það geti verið svona semí erfitt á köflum. Ég er búinn að plömma mér helvíti vel inn í bekkinn minn og er þar einnig næstum því höfðinu hærri enn allir, mér finnst það mjög gaman þar sem ég hef aldrei verið neitt sérstaklega stór náungi.

Það er eitt sem mér finnst mjög undarlegt og það eru þessir snýtipappírar, vaffanculo hvað þeir eru pirrandi, svo fær maður væga yfirdrullun fyrir að sjúga upp í nefið. Þetta finnst mér mjög svo undarlegt, enn þetta er nú ekkert svaka stór díll.
Annað sem mér finnst mjööög skrýtið er að það er eitt gift par í bekknum mínum tvö trúlofaðar stelpur og einn strákur og svo er held ég bara ein stelpa á lausu...og það er góð ástæða fyrir því skal ég segja ykkur, mjög stór ástæða.

Það er annars búið að vera allveg helvíti skemmtilegt hérna, búinn að stökkva ofan í vatnið með bekkjarfélögum og skoða allskonar hluti í Lecco, meðal annars búinn að fara í stærsta mall sem ég veit af, gott að segja að ég villtist þar enn það er ekkert merkilegt.

En nóg í bili, veit að þessar færslur eru allt annað enn langar en þið verðið bara að hafa það

Þangað til næst, Ciao

kv, Danni

Wednesday, September 12, 2012

Mættur

                                                                                      12.09.12

Þá er maður fresh and chilling í Merate sem er allveg mjög krúttlegur og of heitur staður í norður Ítalíu.

Eftir allveg fáranlegt ferðalg er maður loksins lentur á réttann stað. Ég varð fyrir hálfgerðum vonbrigðum í róm þar sem við fengum ekki að sjá neitt. Veikindi hrjáðu líka marga sem gerði móralinn ekkert það góðann en ég hitti mikið af fólki og kynntist fólki líka beur

Fjölskyldan mín er búin að vera mjög góð og hjálpaði mér mjög mikið að komast inn í lífið hér og Maddalena ("systir mín") hefur kynnt mig fyrir allveg helling af fólki, það hefur hjálpað mjög mikið.

Ég fór í skólann í dag (12.09) og það var allveg skemmtileg reynsla, að skilja ekki skýt í heilann dag er mjög furðulegt, svo er alltaf verið að reyna að tala við mann, en þetta fólk kann bara ekki jack shit í ensku þannig að það er allveg mjög takmarkað.
Í skólanum var ég samt mjög vinsæll þennan fyrsta dag, var dáldið eins og eitthvað nýtt leikfang sem krakkarnir fengu að leika sér að. Svo gerði maður sig að fífli og margt fleira. 

En nóg í bili, veit ekki hvern blog áhuginn verður í vetur, en það kemur allt í ljós.

Kveðja, Danni