Tuesday, August 21, 2012

Áður en ég fer


Ég heiti Daníel og er 17 ára, kem frá litlum bæ á austurströnd landsins sem heitir Reyðarfjörður og er að fara sem skiptinemi til Ítalíu.

Eftir langa bið fékk ég loksins að fá að vita hver, hvar og hvernig fjölskyldan mín í Ítalíu myndi vera.
Þau eru tvö, Pabbinn og dóttir hans. Þetta verður í fyrsta skiptið sem ég deili húsi með aðeins tveim manns þar sem fjölskyldan mín innheldur 5 stykki.
Ég á eftir að eiga heima næsta árið í "litlum" bæ nálægt Milan sem heitir Merate. Merate er já ekki það stór en samt búa miklu fleiri þar heldur en ég er vanur, eða 17.000 manns, bærinn minn hérna á Íslandi rétt slefar upp í þúsund, en þetta verður ekkert annað en góð tilbreyting.


Merate

Ildefonso (pabinn) er fasteignasali og er skuggalega líkur pabba mínum, og dóttir hans heitir Maddalena og hún er 2 árum eldri en ég og gengur enn í skóla.
Ég á eftir að ganga í skóla í Lecco sem er afar fallegur bær og heitir skólinn Instituti Technicale eitthvað , sem er eitthver vísindaskóli.... held ég.

Ég held að þetta sé nóg í bili og ég reyni að setja eitthvað meira hérna þegar ég er kominn út. Arrivederci



No comments:

Post a Comment